
Á Haustmóti ÍSS var veittur bikar Bikarmótaraðar ÍSS 2019-2020. Er þetta í fyrsta skiptið sem bikarinn er veittur.
Í mótaröðinni eru þrjú mót Skautasambandsins og fyrir síðasta tímabil voru það Haustmót, Vetrarmót og Vormór. Skautarar félaganna safna stigum á þessum mótum fyrir félög sín og í lok tímabils stendur það félag uppi sem bikarmeistari sem flest stigum hefur safnað. Haustmótn og Vetrarmót 2019 giltu til stiga á síðasta tímabili en fella þurftir Vormót 2020 niður vegna Covid19. Stóð Skautafélag Akureyrar uppi sem sigurvegari Bikarmótaraðar ÍSS og er því Bikarmeistari 2020.
Keppendur félagsins tóku á móti farandbikar og eignarbikar við hátíðlega athöfn á sunnudag.