Kjörnefnd ÍSS óskar eftir framboðum til stjórnar ÍSS fyrir Skautaþing 2022
Samkvæmt lögum ÍSS skal kjósa stjórn til tveggja ára. Á sléttu ártali skal kjósa tvo aðalmenn og einn varamann. Hitt árið skal kjósa formann, tvo aðalmenn og einn varamann.
Á Skautaþingi sem haldið verður 30. apríl 2022 verður því, skv. lögum ÍSS, kosið um tvo aðalmenn og einn varamann til tveggja ára.
Um hæfi til stjórnarsetu er vísað í 7. grein laga ÍSS á heimasíðu, www.iceskate.is. Sérstök athygli er vakin á því að þeir sem bjóða sig fram til stjórnarsetu í stjórn ÍSS mega ekki hafa hlotið refsidóma vegna brota á ákvæði XXII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 eins og kveður á í lögum ÍSÍ 2. kafla 5a.
Framboðsfrestur er til og með 8. apríl 2022. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram eða hafa ábendingar um áhugasama félagsmenn sem gætu haft áhuga á að bjóða sig fram skulu senda framboð og ábendingar til kjörnefndar á netfangið kjornefnd@iceskate.is.
Kjörnefnd Skipa:
Formaður:
Kristín Ómarsdóttir (Jökull)
Nefndarmenn:
Anna Kristín Jeppesen (SR)
Hrafnhildur Guðjónsdóttir (SA)
Ingimar Ingason (Ösp)
Rakel Hákonardóttir (Fjölnir)