Brjóta ísinn á EM
Júlía Sylvía Gunnarsdóttir og Manuel Piazza verða fyrsta parið til að keppa fyrir hönd Íslands á Evrópumóti á listskautum á morgun. Þau komu á mótsstað síðastliðið sunnudag en mótið fer fram í Tallinn, Eistlandi. Undirbúningur hófst í gær með tveimur krefjandi æfingum, þar sem álagið var áberandi og æfingar gengu brösulega.
Í dag breyttist andrúmsloftið hins vegar töluvert. Parið var búið að hrista af sér stressið og var mun afslappaðra, fullt af jákvæðni og stolti yfir þessum tímamótum. Á tónlistaræfingu í dag skautuðu Júlía og Manuel stutta prógrammið sitt af nákvæmni, með kröftugri frammistöðu og greinilegt var að þau hafa komist yfir mesta stressið. Öll atriði (e. element) þeirra heppnuðust vel og hreyf sterk túlkun þeirra á tónlistinni viðstadda.
Eftir glæsilega frammistöðu á æfingum fór var dregið í keppnisröð. Þar sem þau Júlía og Manuel hafa aðeins skautað saman í nokkra mánuði hafa þau ekki enn komist inn á heimslista og brjóta því ísinn með því að stíga fyrst á svellið. Þau taka áskoruninni með jákvæðu hugarfari og eru tilbúin að skapa stemningu fyrir mótið og setja viðmiðið hátt. Keppni hest klukkan 11:00 á morgun og hægt er að fylgjast með í beinni útsendingu á YouTube rás Alþjóða Skautasambandsins (ISU).
Þátttaka þeirra markar nýjan kafla fyrir íslenskt listhlaup á skautum og veitir innblástur komandi kynslóðum, auk þess að vekja athygli á íþróttinni hér á landi. Aðdáendur bíða spenntir eftir frammistöðu þeirra og hvetja þetta brautryðjandi par áfram.