Því miður hefur ÍSS þurft að aflýsa fyrirhuguðum fræðslufyrirlestri sínum þar sem að ekki þótti ráðlegt að hafa svo marga einstaklinga saman í rými.
Þjálfunar- og fræðslunefnd mun senda út fræðslu í næstu viku sem mikilvægt er að kynna sér vel.
Laugardaginn 26. september kl.16:00-17:00 fer fram fyrsti fræðslufundur tímabilsins.
Fræðslufyrirlestrar ÍSS eru á vegum þjálfunar- og fræðslunefndar ÍSS og vill Skautasambandið undirstrika mikilvægi þess að sem flestir mæti á fræðslufyrirlestrana sem eru í boði.
Fræðslan er bæði mikilvægur hluti endurmenntunar þjálfara sem og góð viðbót fyrir iðkendur, foreldra/forráðamenn og stjórnir félaga.
Fyrirlestrar fara fram á íslensku og ensku.
—
Dagskrá:
- Kynning á hlutverki Æskulýðsvettvangsins og námskeiðum á þeirra vegum
Meðal annars á námskeiðunum ,,Verndum þau“ og ,,Einelti í íþrótta- og æskulýðsstarfi“ - Kynning á Siðareglum ÍSS.