#skatingiceland
Framboð til stjórnar ÍSS 2025

Framboð til stjórnar ÍSS 2025

Kjörnefnd ÍSS óskar eftir framboðum til Stjórnar ÍSS fyrir Skautaþing 2025

Samkvæmt lögum ÍSS skal kjósa stjórn til tveggja ára. Á sléttu ártali skal kjósa tvo aðalmenn og einn varamann. Hitt árið skal kjósa formann, tvo aðalmenn og einn varamann.

Á Skautaþingi sem haldið verður 18. maí verður því kosið um; formann, tvo aðalmenn og einn varamann.

Um hæfi til stjórnarsetu er vísað í 7. grein laga ÍSS á heimasíðu, www.iceskate.is. Sérstök athygli er vakin á því að þeir sem bjóða sig fram til stjórnarsetu í stjórn ÍSS mega ekki hafa hlotið refsidóma vegna brota á ákvæði XXII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 eins og kveður á í lögum ÍSÍ 2. kafla 5a.

Framboðsfrestur er til og með 27. apríl 2025. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram eða hafa ábendingar um áhugasama félagsmenn sem gætu haft áhuga á að bjóða sig fram skulu senda framboð og ábendingar til kjörnefndar á netfangið kjornefnd@iceskate.is.

Kjörnefnd Skipa:

Formaður:
Hrafnhildur Guðjónsdóttir (SA)

Nefndarmenn:
Kristel Björk Þórisdóttir (Fjölni)
Bogey Ragnarsdóttir (SR)
Ingimar Ingason (Ösp)

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Translate »