Skautasamband Íslands hefur valið þá skautara sem keppa fyrir Íslands hönd á Norðurlandamótinu á listskautum 1.-5. febrúar 2023.
Þeir skautarar sem keppa á Norðurlandamótinu eru:
Junior / unglingaflokkur:
Júlía Sylvía Gunnarsdóttir
Lena Rut Ásgeirsdóttir
Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir
Advanced Novice / stúlknaflokkur:
Sædís Heba Guðmundsdóttir
Indíana Rós Ómarsdóttir
Mikil eftirvænting er eftir mótinu þar sem að mótið fer fram í Reykjavík. Keppt verður í Skautahöllinni í Laugardal en aðalæfingar (e. Official Practice) fara fram í Egilshöll. Það verður mikið um dýrðir á skautasvellunum í Reykjavík þá dagana. Auk keppenda frá Norðurlöndunum geta skautarar frá öllum landssamböndum sem eru aðili að Alþjóða Skautasambandinu (ISU) sent skautara til keppni í flokkum Junior og Senior. Þannig geta skautarar því náð viðurkenndum lágmarksstigum sem gilda til lágmarka á Heimsmeistaramót fullorðinna, Heimsmeistaramót unglinga sem og inn á heimslista ISU. Við eigum því von á fjölmörgum gestum víðsvegar að úr heiminum til okkar í byrjun febrúar á næsta ári.