#skatingiceland
Skautasamband Íslands

Skautum Regnbogann

Verkefnið Skautum regnbogann er ætlað fyrir byrjendastig og byggist á því að setja upp ákveðið kerfi til þess að bæta og samræma skautakennslu hjá félögunum. Með þessu teljum við að betri árangur náist í kennslu og skautarar upplifi íþróttina á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Meta skal árangur skautara jöfnum höndum. Félögin vinna eftir sameiginlegu kerfi og þjálfarar fá með þessu markvisst kerfi til að vinna eftir og á þann hátt verður þjálfunin skilvirkari og fylgir hraða og hæfni einstaklingsins.

Skautum regnbogann er í umsjón skautafélaga landsins en yfirumsjón er í höndum Skautasambands Íslands. Kennsla í kerfinu fer fram hjá skautafélögunum og byggist á hópkennslu sem framkvæmd er af þjálfurum sem hafa lokið að lágmarki þjálfararéttinda á 1.stigi. Kerfið inniheldur kennsluaðferðir með þrepaskiptum markmiðum í sveigjanlegu og skemmtilegu námsumhverfi, ásamt því að það byggir á fljótu og auðveldu símati sem verðlaunar skautara strax. Skautum regnbogann veitir skauturum góðan grunn og þjónar bæði skauturum sem hafa áhuga á að nýta íþróttina sem tómstundargaman og einnig þeim sem huga seinna meir að keppni.

Skautum regnbogann leggur höfuðáherslu á að byggja upp grunnskautafærni á markvissan hátt. Stigin eru sjö og innihalda margvíslegar æfingar sem allar stuðla að góðri undirstöðu innan íþróttarinnar. Farið er frá því einfalda
til hins flókna í öllum áföngum kerfisins og hentar kerfið öllum nýjum skauturum sama hvort um er að ræða algera byrjendur eða aðeins lengra komna. Þegar skautari hefur lokið hverju stigi fyrir sig í kerfinu verður árangursskírteini undirritað af þeim sem metur árangurinn. Þar að auki fær skautarinn barmmerki sem viðurkenningu og eru þau í sitt hvorum litnum, eftir því hvaða stigi verið var að ljúka.

Undirstöðuatriði íþróttarinnar eru eftirfarandi:

  • Líkamsburður og líkamshalli
  • Notkun á hnjám – að beygja hné
  • Notkun á ökklum
  • Rennsli
  • Brúnir, notkun brúna og notkun líkamsþyngdar
  • Taktur og samhæfing
  • Aukning á hraða og takti smám saman
  • Rétt spyrna

Ef þessi atriði eru rétt í upphafi stuðlar það að betri grunni og styrkir stöðu skautarans innan íþróttarinnar í framtíðinni.

Búnaður
Fatnaður

  • Hlýr og teygjanlegur fatnaður (heftir ekki hreyfigetu)
  • Vettlingar eru nauðsynlegir
  • Sleppa skal löngum treflum, hangandi reimum, skartgripum eða hörðu hárskrauti ef kostur er

 Skautar

  • Eiga að vera í réttri stærð og veita ökklum stuðning þ.e. skautar eru mátulegir ef skautari er í einu pari af sokkum. Leður skautar eru æskilegir.
  • Eiga að vera vel reimaðir – ekki að ná fingri á milli

 Skerping

  • Er nauðsynleg fyrir nýja skauta
  • Skal framkvæmd af fagmönnum, leitið upplýsinga hjá skautafélögum
  • Er háð aðstæðum t.d. umhirða skautanna og hversu oft er æft
  • Ef byrjandi: skautar tvisvar á viku = skerping á tveggja til þriggja mánaða fresti

 Hvernig annast skal um skauta og skautablöð

  • Lofta skal um skauta milli æfinga
  • Þurrkið skauta og blöð eftir hverja notkun með t.d. handklæði
  • Nota skal plasthlífar til að ganga á fyrir utan ísinn. Geymið skauta ekki í þessum plasthlífum á milli æfinga þar sem blöðin geta riðgað.

Ferlið á Skautum regnbogann

Skautum regnbogann skiptist í 7 stig. Hægt er að fara í gegnum stigin óháð tíma eða röð í samráði við þjálfara.

Þegar skautari hefur náð öllum stigunum hjá félagi sínu getur hann, í samráði við þjálfara, hafið undirbúning fyrir fyrsta grunnpróf hjá ÍSS.

Kostnaður

Það er ekki mjög kostnaðarsamt að taka þátt í íþróttinni í byrjun en kostnaðurinn getur orðið umtalsverður þegar frekari færni er náð og skautari er kominn lengra innan íþróttarinnar. Kostnaður fer eftir því á hvaða stigi skautari er. Skipta verður oftar út ýmsum búnaðir s.s. skautaskóm, skautablöðum, búningum og æfingafatnaði þegar lengra er komið. Þá verður einnig að taka með í reikninginn kostnað vegna einkatíma, fleiri æfingatíma, sumaræfinga (sem jafnvel fara fram erlendis), kostnaður við keppni og ferðalög tengd íþróttinni.

Translate »